Guðjón Guðmundsson (andsvar):
Herra forseti. Það er alveg hárrétt hjá hv. þingmanni að við erum á öndverðum meiði varðandi atvinnustefnu í þessu landi og verðum það væntanlega. Ég ber svo sem alveg virðingu fyrir því að aðrir hafi aðrar skoðanir en ég. Ég er þeirrar skoðunar að við eigum að nýta auðlindir okkar til lands og sjávar innan skynsamlegra marka til að auka hagsæld þessarar þjóðar og ég tel að við gerum það m.a. með því að virkja fallvötnin til raforkuframleiðslu til orkufreks iðnaðar. Ég tel að það hafi gefist okkur vel hingað til og muni vonandi gera það áfram.
Það er alveg rétt sem hv. þm. segir, það þurfa að vera ásættanlegir staðlar á vinnustað og það er bara svo í þessum verksmiðjum okkar að þar er mjög vel að þessum málum staðið og það hefur verið reynt að standa mjög vel að því verki. Hv. þm. nefnir að hún hafi kynnt sér þetta í Ísal og þar sé vel að fólki búið. Ég fullyrði við hana að það er einnig svo á Grundartanga. Ég kem oft í þessar verksmiðjur þarna á Grundartanga og það er mjög vel að öllu staðið, báðar verksmiðjurnar eru með öryggisfulltrúa sem leggja áherslu á vinnuumhverfi fólksins og að vel sé að því búið. Ég hvet hv. þm. fyrst hún hefur ekki kynnt sér þessa verksmiðju að fara þangað í heimsókn og skoða niðurstöður mengunarmælinga varðandi Norðurál. Þær eru mjög merkilegar, ég skoðaði þær síðast á mánudagskvöldið og það er eiginlega með ólíkindum hvað verksmiðjan er langt innan þeirra marka sem henni er heimilt að vera varðandi alla mengun. Og ég fullyrði að það er afskaplega vel búið að fólki þarna. Það er sem betur fer mjög lág slysatíðni, m.a. vegna þess að þetta fyrirtæki leggur mikla áherslu á starfsaðstöðu fólksins og leggur sig fram um að skapa gott vinnuumhverfi.
Ég ítreka það að ég hvet hv. þingmann til að heimsækja þetta ágæta fyrirtæki, ég er alveg viss um að hún mun koma betri manneskja til baka.