Árni Steinar Jóhannsson (andsvar):
Herra forseti. Mér fannst þetta algjörlega glórulaust andsvar hjá hæstv. iðnrh. Telur hæstv. iðnrh. virkilega að þetta sé bara spurning um bisness milli fyrirtækja? Af hverju heldur hæstv. iðnrh. að við séum að gera áætlanir um nýtingu auðlinda, t.d. í sjávarútvegi? Þetta er nákvæmlega eins auðlind. Gengur ekki næsta frv. á dagskrá út á það, þ.e. um breytingu á lögum um raforkuver? Er það ekki vegna þess að hið háa Alþingi vill stjórna því hvernig farið er í þessa auðlind? Það hefur ekkert með viðskipti að gera.
Sú stjórn sem hæstv. ríkisstjórn og Alþingi vill hafa á þessum málum er grunnur viðskipta, sem er allt annars eðlis, alveg eins og útgerð er rekin á grunni fiskveiðistjórnarstefnu. Það undrar mig því stórlega að hæstv. iðnrh. skuli leyfa sér að segja að þetta sé spurning um viðskipti. Auðvitað er það ekki svo. Var ég ekki að draga það fram í umræðunni, að við viljum vita hvað er verið að gera í nágrenni höfuðborgarsvæðisins varðandi nýtingu þessarar auðlindar? Erum við að gera eitthvað sem leiðir til þess að notkun á hitasvæðunum standi skemur en annars hefði orðið? Margir álíta það. Við vitum að þetta er ekki óþrjótandi auðlind, eins og dæmin varðandi lághitasvæði sanna, sérstaklega þar sem menn hafa lent í þurrð.
Við förum fram á að hér verði sett fram orkustefna á grunni rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma.