Sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur

Mánudaginn 10. mars 2003, kl. 10:35:18 (4562)

2003-03-10 10:35:18# 128. lþ. 93.6 fundur 520. mál: #A sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur# (ársreikningar) frv. 49/2003, Frsm. EKG
[prenta uppsett í dálka] 93. fundur, 128. lþ.

[10:35]

Frsm. efh.- og viðskn. (Einar K. Guðfinnsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 33/1999, um sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur.

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem snerta ákvæði um ársreikninga vegna þróunar í löggjöf þeirra.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Undir þetta rita nefndarmenn efh.- og viðskn. eins og rakið er í nefndaráliti.