Innflutningur dýra

Mánudaginn 10. mars 2003, kl. 11:47:05 (4585)

2003-03-10 11:47:05# 128. lþ. 93.23 fundur 106. mál: #A innflutningur dýra# þál. 15/128, Frsm. DrH
[prenta uppsett í dálka] 93. fundur, 128. lþ.

[11:47]

Frsm. landbn. (Drífa Hjartardóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. frá landbn. um till. til þál. um endurskoðun laga um innflutning dýra.

Nefndin hefur fjallað um málið sem er endurflutt frá síðasta þingi. Umsagnir bárust frá Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Æðarræktarfélagi Íslands, Forystufjárræktarfélagi Íslands, Geitfjárræktarfélagi Íslands, yfirdýralækni, Landssamtökum sauðfjárbænda, Litförótta félaginu, dýraverndarráði, Dýralæknafélagi Íslands, Samtökum afurðastöðva í mjólkuriðnaði, Nautgriparæktarfélagi Íslands og Bændasamtökum Íslands.

Í tillögunni er gert ráð fyrir að fela landbúnaðarráðherra að hefjast þegar handa um endurskoðun laga um innflutning dýra, og búnaðarlaga, með það að markmiði að vernda íslenska dýra- og búfjárstofna.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.

Sigríður Jóhannesdóttir, Guðjón Guðmundsson, Jónína Bjartmarz og Einar Oddur Kristjánsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir nál. rita Drífa Hjartardóttir formaður, Kristinn H. Gunnarsson, Karl V. Matthíasson, Þuríður Backman og Sigríður Ingvarsdóttir.