Meðhöndlun úrgangs

Mánudaginn 10. mars 2003, kl. 16:56:47 (4633)

2003-03-10 16:56:47# 128. lþ. 93.26 fundur 338. mál: #A meðhöndlun úrgangs# (EES-reglur) frv. 55/2003, Frsm. MS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 93. fundur, 128. lþ.

[16:56]

Frsm. umhvn. (Magnús Stefánsson) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. Gunnar Birgisson vék að því í ræðu sinni að við umfjöllun í nefndinni hefði verið rætt um að fá upplýsingar frá Bandaríkjunum um hvernig þessum málum væri háttað þar. Það er alveg rétt. Af því tilefni vil ég láta koma fram að gerðar voru ráðstafanir til að afla þeirra upplýsinga. Ég er nokkuð viss um að þær hafi borist og ég geri ráð fyrir að nefndarmenn muni fá þær í dag eða á morgun, a.m.k. mjög fljótlega. Ég vildi bara að þetta kæmi fram af þessu tilefni.