Framhald þingfundar

Mánudaginn 10. mars 2003, kl. 23:57:52 (4677)

2003-03-10 23:57:52# 128. lþ. 94.93 fundur 483#B framhald þingfundar# (um fundarstjórn), ÖJ
[prenta uppsett í dálka] 94. fundur, 128. lþ.

[23:57]

Ögmundur Jónasson:

Herra forseti. Ég vil taka undir það sem hv. þm. Einar K. Guðfinnsson sagði í upphafi, að það sé eðlilegt að við reynum að komast að samkomulagi um þessi mál. Ég ítreka ósk mína um að gert verði hlé á fundinum og við ræðum hvernig haga skuli þinghaldinu það sem eftir er af þessum þingfundi.