Fjármögnun sjóðs til að auka verðmæti íslenskra sjávarafurða

Þriðjudaginn 11. mars 2003, kl. 22:51:01 (4811)

2003-03-11 22:51:01# 128. lþ. 96.23 fundur 688. mál: #A fjármögnun sjóðs til að auka verðmæti íslenskra sjávarafurða# þál., HBl (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 96. fundur, 128. lþ.

[22:51]

Halldór Blöndal (andsvar):

Herra forseti. Ég man ekki betur en formaður Vinstri grænna, hv. 3. þm. Norðurl. e., Steingrímur J. Sigfússon, hafi sagt að það væri sama hvenær gott kemur og hvaðan gott kemur. Ég held að þingmenn Samfylkingarinnar ættu að temja sér það jafnaðargeð að amast ekki við því þegar góðverk eru (Gripið fram í.) unnin.