Fyrirspyrjandi (Kristján Pálsson):
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. utanrrh. fyrir skýr og greinargóð svör. Þetta er að sjálfsögðu mál sem ég vissi að heyra ekki beint undir kaupskrárnefnd og því var þetta ákveðin stefna sem hafði mótast á nokkrum árum og menn voru farnir að vinna eftir. Bara það að ákveðnir aðilar sem voru að fara á eftirlaun á þessum mánuðum fara inn í annað kerfi sem þeir höfðu ekki undirbúið sig fyrir kemur þessu máli í dálítið uppnám. Ég veit að þetta er ekkert sem hægt er að heyra upp á venjulega samninga, enda hef ég ekki vitað annað en almennt hafi allt staðið eins og stafur á bók af því sem varnarliðið hefur ákveðið. En í þessu tilfelli hafa starfsmenn þó verið settir dálítið út á hliðarlínuna þannig að ég vildi spyrja hæstv. utanrrh. hvort hann mundi ekki beita sér fyrir því að þeir starfsmenn sem voru farnir að gera ráð fyrir því að komast á eftirlaun samkvæmt þeim aðlögunarsamningum sem voru í gildi, hvort þeir geta ekki tekið starfslok samkvæmt þeim en síðan tæki ný stefna gildi að því loknu.