Almennar stjórnmálaumræður (útvarpsumræður)

Miðvikudaginn 12. mars 2003, kl. 20:14:31 (4863)

2003-03-12 20:14:31# 128. lþ. 98.1 fundur 493#B almennar stjórnmálaumræður (útvarpsumræður)#, ÖJ
[prenta uppsett í dálka] 98. fundur, 128. lþ.

[20:14]

Ögmundur Jónasson:

Góðir Íslendingar. Hinar pólitísku línur hafa verið nokkuð skýrar í flestum málaflokkum á þessu kjörtímabili. Sex þingmenn töluðu í úrslitaumræðu um stóriðjuáformin. Sex þingmenn studdu tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð öræfanna norðan Vatnajökuls. Þetta voru að sjálfsögðu þingmenn Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs. Þrír þingmenn til viðbótar höfðu áður lagst gegn stóriðjuáformum ríkisstjórnarinnar og hafi þeir lof fyrir það.

[20:15]

Ekki hafa línur verið eins skýrar í öllum málum. En eitt er víst að alltaf hefur mátt reiða sig á þingflokk Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs í sókn en einnig í vörn fyrir velferðarkerfið. Þegar einkavæðingu hefur borið á góma hafa fulltrúar annarra flokka ýmist verið fylgjandi eða gerst nokkuð óskýrir í tali. Ráðherraefni Samfylkingarinnar sagði í Borgarnesi í umtalaðri ræðu, svo dæmi sé tekið, að markverðustu málin sem unnist hefðu í stjórnartíð Sjálfstfl. frá árinu 1991 hefðu annars vegar verið hinn evrópski EES-samningur og hins vegar --- ja, hvað skyldi það hafa verið? Jú, það var einkavæðing ríkisbankanna.

Öðruvísi drögum við upp afrekaskrá og syndaregistur Sjálfstfl. á tólf ára valdaferli hans, valdaferli sem nú er orðið tólf árum of langt. Sjálfstfl. er nú greinilega orðinn hræddur um að valdasetan sé á enda. Og hvað er gert þá? Eins og fyrri daginn er gripið til hræðsluáróðurs.

Davíð Oddsson forsrh. segir að komi vinstri stjórn þá brenni sparifé landsmanna upp í óðaverðbólgu. Þetta er rangt. Það voru vinstri menn sem kváðu niður verðbólguna fyrir rúmum tólf árum, áður en Davíð Oddsson kom í Stjórnarráð Íslands, og það erum við, vinstri mennirnir, sem hvetjum til varfærni og yfirvegunar í efnahagsmálum. Það erum við sem vörum við óráðsíu, segjum að ekki megi ofkynda efnahagskerfið og setjum fram tillögur í atvinnu- og efnahagsmálum sem stuðla að festu og sem stuðla að stöðugleika.

Það er hins vegar alveg rétt, og ég ætla ekki að mæla því í mót, að síðustu daga og vikur hafa komið fram yfirboð og gylliboð sem engin innstæða er fyrir og vísa ég þá sérstaklega í yfirlýsingar formanns Framsfl. um að senn verði unnt að auka útgjöld ríkissjóðs og lækka skatta um 15 milljarða kr. á ári. Ekki nokkur hagfræðingur skrifar upp á þessar undarlegu bókhaldskúnstir og mér er sagt að hagfræðingar í verkum fyrir Framsfl. fari nú með veggjum.

En hvað um það. Þetta segir Framsfl. að sé hægt vegna arðsins af stóriðju, stóriðju sem Framsfl. vill gera að hornsteini íslenska velferðarkerfisins. Látum liggja á milli hluta deilur um hvort yfirleitt verður nokkur arðsemi af stóriðjuframkvæmdunum fyrir íslenska þjóðarbúið. Hitt er óábyrgt, að lofa upp í ermina á sér fyrir kosningar. Forsætisráðherrann ætti að hvísla að sessunauti sínum að ef hann ætlar að halda svona áfram þá gengur ekki að líkja Framsóknarflokknum við klettinn í hafinu, eins og stundum hefur verið gert fyrir alþingiskosningar í auglýsingum. (Gripið fram í.) Nær væri að tala um steinvöluna eða smásteininn eða kannski helst titrandi strá í túni.

Fyrst og fremst ætti forsrh. þó að líta í eigin barm. Það sem ruglað hefur Sjálfstfl. í ríminu er löng valdaseta og fylgispekt, fylgispekt valdakerfis landsins við flokkinn. Ég ætla að taka eitt lítið dæmi.

Sjálfstfl. gerist á gamals aldri málsvari ríkisafskipta í þungaiðnaði. Frjálshuga fylgismenn flokksins verða gapandi af undrun, trúa ekki eigin augum. En að lokum eru allir barðir til hlýðni. Þannig birtust á sjónarsviðinu Samtök atvinnulífsins og tóku að blessa allt í bak og fyrir. Þau nöldra að vísu svolítið núna þegar málið er komið út úr þingi, yfir háum vöxtum og óraunhæfu gengi. En þegar á þurfti að halda, þegar tekist var á um þá ákvörðun hvort fórna ætti öræfunum fyrir Alcoa þá var ályktað kvölds og morgna. Allt var sagt vera í himnalagi löngu áður en raforkusamningar voru í sjónmáli og nokkrar efnahagslegar forsendur til að byggja á. Á fundi í efh.- og viðskn. Alþingis var haft á orði að gamla, góða Vinnuveitendasambandið, eins og það var kallað, mundi samþykkja samyrkjubú ef flokkurinn aðeins krefðist þess.

Þá aftur að forsætisráðherranum. Hann og flokkur hans skyldu tala varlega þegar kemur að því að gefa öðrum einkunn fyrir frammistöðu í efnahagsmálum því staðreyndin er sú að á undanförnum árum hefur verið uppsveifla í efnahagsmálum á Vesturlöndum og hefur hún skilað sér inn í samfélög í þessum heimshluta í auknum kaupmætti þjóðanna. Það hefur síðan verið komið undir stjórnvöldum í hverju landi fyrir sig hvernig til hefur tekist um skiptin og þar hefur nú íhaldinu heldur betur förlast verkstjórnin. Stór göt hafa verið rifin í félagslega öryggisnetið. Biðlistar eftir húsnæði hafa aldrei verið lengri. Tilkostnaður einstaklinga við heilbrigðisþjónustu hefur stóraukist og kjaraþróun aldraðra, öryrkja og láglaunafólks er ekki í nokkru samræmi við hátekjustéttirnar sem Sjálfstfl. hefur nostrað við. Við skulum ekki gleyma því að þetta er sama ríkisstjórnin og fannst of mikið í lagt til að bæta kjör öryrkja. Við munum öll eftir öryrkjadómnum.

Sjálfstfl. hefur gerbreytt íslensku þjóðfélagi í grundvallaratriðum. Um daginn talaði ég um braskvæðingu í þessu samhengi. Fjármálaráðherrann Geir Haarde reiddist þessu mjög fyrir hönd síns flokks og sagði þetta vera steinaldarviðhorf. En við fjármálaráðherrann vil ég segja: Íslendingar vita nákvæmlega hvað orðið ,,brask`` þýðir. Ég þarf ekki einu sinni að nefna dæmin um bónusgreiðslur sem eru hærri en ævitekjur verkamanns og skattaskjólin sem fjármálafyrirtækin hafa búið milljarðamæringunum.

Ég held að sjálfstæðismenn sjálfir geri sér grein fyrir því að gagnrýni okkar snýr ekki að eðlilegum viðskiptum í þjóðfélaginu heldur inn á hvaða braut viðskiptalífið er komið. Er niðurstaðan ekki sú að bylting hinnar hráróttæku frjálshyggju, sem hefur rifið niður allar girðingar og múra, er farin að éta börnin sín?

Þetta er líka skýringin á því að okkar sjónarmið fá nú góðan hljómgrunn þar sem áhersla er á blandað hagkerfi þar sem atvinnulíf og almannaþjónusta byggir hvort annað upp. En hvað er það nákvæmlega sem við viljum? Það er alveg skýrt. Við segjum: Það á að vera hlutverk ríkisins að byggja upp velferðarþjónustu, skóla og rannsóknir, sjúkrahús, samgöngur, almannatryggingar, löggæslu, þjónustu við fatlaða, gott húsnæðiskerfi, að tryggja réttlæti og velferð í þjóðfélaginu. Það er einnig okkar, með örvandi almennum aðgerðum, að virkja það frumkvæði sem býr í atvinnulífinu sjálfu, þann sköpunarkraft sem þar er fyrir hendi og hefur að meðaltali fært okkur helmingi fleiri störf á hverju einasta ári frá 1970 en milljarðafjárfesting ríkisstjórnarinnar nú í stóriðju.

Staðreyndin er nefnilega sú að ríkisstjórn hægri manna hefur snúið öllu á hvolf, ráðist gegn grunnþjónustunni, dregið úr henni og einkavætt og lagt niður fjárfestingarsjóði atvinnulífsins, en hins vegar hafið stórfelld bein ríkisafskipti af atvinnurekstri á kostnað almannasjóða.

En hvað um Samfylkinguna? Það er einmitt á þessum punkti sem mig langar til að þakka henni. Ég vil færa Samfylkingunni sérstakar þakkir fyrir að birta ræðu ráðherraefnis flokksins frá Borgarnesi. Þar sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir að hún aðhylltist sömu stefnu og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. Hann hefði í raun stolið ,,blairismanum`` frá henni og pólitískum samferðamönnum. Fyrir þjóðina er nauðsynlegt að vita þetta því að undir merkjum ,,blairisma`` hefur velferðarþjónustan breska verið einkavædd sem aldrei fyrr, enda fer kurrinn vaxandi út í bresku hægri kratana og það er ekki bara út af Írak.

Nú spyr ég þá sem vilja tveggja flokka kerfi á Íslandi: Er það þetta sem menn vilja? Eða vilja menn ríkisstjórn með vinstri áherslum, velferðarstjórn sem rís undir því sæmdarheiti? Slík stjórn verður ekki mynduð án Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs. En slíkrar stjórnar bíður spennandi uppbyggingarstarf, að framkvæma hugmyndir okkar um nýtt húsnæðiskerfi. Við erum með tillögur um kjarabætur fyrir barnafólk, samfélagslaun fyrir öryrkja, réttlátt skattkerfi, gerbreytt fiskveiðikerfi, stuðning við lítil og meðalstór fyrirtæki, ríkar áherslur í jafnréttismálum, umhverfismálum og náttúruvernd.

Sérhver kjósandi þarf nú að spyrja: Hverjum treysti ég best til að halda uppi merki jafnaðar, sóknar í lífskjaramálum almennings, launafólks, öryrkja og aldraðra? Hverjum treysti ég til að halda uppi baráttu fyrir umhverfisvernd og réttlæti á alþjóðavettvangi? Hverjir eru líklegastir til að berjast fyrir því að Ísland hafi sjálfstæða utanríkisstefnu í stað þess að fylgja NATO og Bandaríkjastjórn eins og nú er gert gagnvart Írak?

Góðir Íslendingar. Það skiptir máli hvernig Vinstri hreyfingunni -- grænu framboði reiðir af í alþingiskosningunum í maí. Ég heiti því að við munum gera okkar besta á komandi kjörtímabili. En til þess þurfum við nú ykkar stuðning. --- Góðar stundir.