Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Ég vil í fyrsta lagi leiðrétta eitt, ég vil ekki að orðum hv. þm. Kristins H. Gunnarssonar sé ómótmælt að ég sé ekki hér í vinnunni minni að sinna þingskyldum. Ég held að hv. þm. mætti alveg velta því fyrir sér að beina frekar skeytum sínum að öðrum en þeim sem hér stendur.
Í öðru lagi, herra forseti, er náttúrlega óhjákvæmilegt að útskýra það fyrir áhorfendum að þessari útsendingu, sem átta sig kannski ekki allir á því, að hér fór fram hálftímaumræða um brýnt mál utan dagskrár og það er samið um það fyrir fram hvernig flokkar skipa þátttöku sinni í umræðunum. Það var löngu frágengið að fyrir hönd Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs töluðu tveir þingmenn, hv. þm. Þuríður Backman, fulltrúi okkar í landbn., og hv. þm. Jón Bjarnason. Þau hafa bæði mikið fram að færa til þessarar umræðu.
Það segir því allt sem segja þarf um það hversu drengileg árás hv. þm. Kristins H. Gunnarssonar var á undirritaðan áðan. Þetta er í afmarkaðri umræðu sem þegar er frágengið hverjir taka þátt í og ég er ekki þar á meðal.
Ummælunum sem slíkum vísa ég til föðurhúsanna. Ég kalla það að bera á mig sakir að reyna í taugaveiklun og örvæntingu Framsfl. yfir ástandi mála í dag að finna skýringar á því og getuleysi hæstv. landbrh. í 12--14 ára gömlum ákvörðunum í landbúnaði. Hefði aðaláfallið fyrir íslenskan landbúnað eða sauðfjárræktina verið afnám útflutningsuppbóta í kjölfar búvörusamningsins 1991 bendi ég hv. þm. Kristni H. Gunnarssyni á að framsóknarmenn hafa haft átta ár til að taka þær upp aftur. Í átta ár hefur hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson gengið um með það steinbarn í maganum að það þurfi að koma á útflutningsuppbótum í landbúnaði á nýjan leik en ekkert orðið ágengt. (Forseti hringir.)
Herra forseti. Það var alveg óhjákvæmilegt að gera athugasemdir við þessi ummæli hv. þingmanns og ég geri ráð fyrir að forseti sé mér sammála um að þarna hafi verið með ódrengilegum og ómaklegum hætti að mér vegið og ég hlaut því að bera af mér sakir.
(Forseti (GuðjG): Forseta fannst undir lok ræðunnar að hv. þm. væri kominn í efnislega umræðu. Að öðru leyti var hann að bera af sér sakir.)