Fyrirspurn um starfslokasamninga hjá Byggðastofnun

Fimmtudaginn 13. mars 2003, kl. 20:20:36 (4978)

2003-03-13 20:20:36# 128. lþ. 100.91 fundur 503#B fyrirspurn um starfslokasamninga hjá Byggðastofnun# (aths. um störf þingsins), Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 100. fundur, 128. lþ.

[20:20]

Forseti (Halldór Blöndal):

Ég vil taka fram að ekki eru efni til athugasemda við hæstv. ráðherra vegna þessarar fyrirspurnar. Starfsáætlun þingsins hefur legið fyrir og er öllum þingmönnum kunnug. Þingmenn hafa haft í hendi sér að leggja fram fyrirspurnir þegar þeim hefur þótt henta og að sjálfsögðu hlýtur forseti að ætlast til þess að þingmenn vinni samkvæmt þingsköpum og ber að gera það.