Frsm. utanrmn. (Sigríður A. Þórðardóttir):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá utanrmn. um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 166/2002, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.
Efni tilskipunar þeirrar sem hér er verið að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara af hefur þegar verið lögfest á Alþingi með frv. sem viðskrh. lagði fram fyrr í vetur og varð að lögum 10. mars sl.
Nefndin leggur einróma til að tillagan verði samþykkt.