Stofnun hlutafélags um Sementsverksmiðju ríkisins

Fimmtudaginn 13. mars 2003, kl. 22:03:37 (5013)

2003-03-13 22:03:37# 128. lþ. 100.33 fundur 648. mál: #A stofnun hlutafélags um Sementsverksmiðju ríkisins# (sala á eignarhluta ríkissjóðs) frv. 62/2003, Frsm. minni hluta ÁSJ
[prenta uppsett í dálka] 100. fundur, 128. lþ.

[22:03]

Frsm. minni hluta iðnn. (Árni Steinar Jóhannsson):

Virðulegi forseti. Við fjöllum um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 28/1993, um stofnun hlutafélags um Sementsverksmiðju ríkisins. Ég mæli fyrir nál. minni hluta iðnn.

Nefndin hefur fjallað um málið og á fund nefndarinnar komu fulltrúar frá Sementsverksmiðjunni hf. Akranesi, Starfsmannafélagi Sementsverksmiðjunnar, Verkalýðfélaginu á Akranesi, Akraneskaupstað og iðnaðarráðuneyti ásamt fulltrúa frá Samtökum iðnaðarins.

Minni hlutinn er efnislega ekki á móti sölu á Sementsverksmiðjunni hf. en gerir athugasemd við aðferðafræði ríkisstjórnarinnar og þar með hæstv. iðnaðarráðherra. Innflutningur á sementi hefur aukist á undanförnum missirum. Sement er nú flutt inn frá Danmörku og mun hlutdeild innflutts sements vera 20--25% af heildarnotkun í landinu. Samkvæmt þeim upplýsingum sem minni hlutinn hefur er verð innflutta sementsins mun lægra en í útflutningslandinu og jafnframt lægra en sementsverð í öðrum löndum sem viðkomandi aðilar flytja út til. Sementsverksmiðjan hf. hefur kært meint undirboð samkeppnisaðilans til samkeppnisyfirvalda. Þau mál eru enn óútkljáð enda þótt ESA hafi kveðið upp þann úrskurð að Sementsverksmiðjan sé ekki ráðandi á markaði hérlendis. Það er alveg ljóst að biðtími eftir úrskurði ESA hefur verið verksmiðjunni dýrkeyptur og það hefur verið skoðun minni hlutans að ríkisstjórnin eða iðnaðarráðherra hefði átt að setja einhliða lágmarksverð á sement í landinu þar til málefni verksmiðjunnar væru komin á hreint. Það kom reyndar fram á nefndarfundi að það var sú aðferð sem forsvarsmenn Samtaka iðnaðarins töldu að kæmi vel til greina.

Minni hlutinn telur að standa beri vörð um Sementsverksmiðjuna hf. og að strax hefði átt að setja lágmarksverð á sement til þess að vinna tíma og ganga úr skugga um samkeppnismál verksmiðjunnar og verðmyndun á innfluttu sementi. Minni hlutinn minnir á þingsályktunartillögu sem undirritaður og hv. þm. Jón Bjarnason hafa flutt á þskj. 32 um úttekt á verðmyndun á innfluttu sementi.

Minni hlutinn minnir einnig á tillögu sömu flutningsmanna á þskj. 133 um úttekt á framtíðarhlutverki Sementsverksmiðjunnar hf. við förgun spilliefna. Reikna má með að flestir landsmenn viti hvert meginhlutverk Sementsverksmiðjunnar á Akranesi er, en líklega hafa fæstir áttað sig á því að Sementsverksmiðjan getur gegnt lykilhlutverki hvað varðar förgun orkuríkra spilliefna og notkun á iðnaðarúrgangi. Nú þegar hefur verksmiðjan unnið brautryðjandastarf á því sviði. Í ofni Sementsverksmiðjunar er brennt talsvert af olíu, framköllunarefnum og leysiefnum og hefur sú brennsla sparað umtalsverð kaup verksmiðjunnar á eldsneyti erlendis frá. Komið hefur fram í viðtölum við forráðamenn verksmiðjunnar að hún geti hæglega tekið að sér förgun aukins hluta úrgangsefna sem til falla. Má þar nefna gúmmí, svo sem hjólbarða sem hægt væri að nota í brennsluferli verksmiðjunnar, en einnig timburafganga og olíur af ýmsu tagi í meira mæli en gert hefur verið fram að þessu. Í fyrrgreindri þingsályktunartillögu er lagt til að gengið verði úr skugga um hvernig Sementsverksmiðjan getur í enn ríkari mæli unnið að förgun úrgangsefna. Gríðarlegt magn úrgangsefna fellur til í landinu, afgangsolíur af ýmsu tagi, timbur og gúmmíafgangar. Pappír sem til fellur er t.d. um 15--20 þús. tonn, timbur 14--15 þús. tonn, dagblöð 10--12 þús. tonn, plast 1.500--2.000 tonn og hjólbarðar 1.500--2.000 tonn. Verksmiðjan fargar nú þegar um 5.000 tonnum af fljótandi efnum sem eru nær eingöngu úrgangsolíur. Sum þessara efna eru flutt úr landi til förgunar en vegna eðlis sementsverksmiðja þar sem vara er unnin við mjög hátt brennslustig er talið að hún geti auðveldlega sinnt mun stærri hluta þessarar nauðsynlegu förgunar og jafnframt gæti það styrkt rekstur verksmiðjunnar að einhverju leyti.

Minni hlutinn telur afar brýnt að þessi úttekt á framtíðarhlutverki verksmiðjunnar varðandi förgun orkuríkra úrgangsefna fari fram áður en áformað verður að selja Sementsverksmiðjuna hf. Í umsögnum kemur fram að Sementsverksmiðjan hefur í samstarfi við Efnamóttökuna hf. látið vinna drög að skýrslu um brennslu úrgangsefna í ofni fyrirtækisins og telur þá málinu til framdráttar að fulltrúar frá fleiri aðilum hafa einnig komið að málinu. Forsvarsmenn Sementsverksmiðjunnar benda á að framtíðarförgun á þessum efnum sé að vísu háð því að hægt verði að tryggja framtíðarverkefni fyrirtækisins. Í umsögn Efnamóttökunnar hf. kemur fram að sementsverksmiðjur erlendis hafa lagt mikla áherslu á að fá úrgangsefni til brennslu í stað olíu og kola. Þannig losna verksmiðjurnar við kaup á eldsneyti og fá jafnvel greitt með brennslu úrgangsefnanna og viðkomandi samfélag þarf ekki að leggja til land undir urðun þeirra úrgangsefna sem þannig er unnt að brenna eða eyða þeim með öðrum og oft dýrari hætti. Með úrvinnslulögum skapast hagrænir hvatar til að safna umbúðaúrgangi, hjólbörðum o.fl. og þau lönd sem hafa á annað borð einhver umhverfismarkmið leitast við að nýta urðun úrgangs eins og kostur er. Sum úrgangsefni er hægt að endurvinna sem hráefni í aðra framleiðsluvöru en fyrir önnur efni þarf að finna aðrar úrvinnsluaðferðir. Á Íslandi er núna engin úrvinnsluaðferð fyrir hjólbarða nema urðun. Hjólbarða og ýmsan umbúðaúrgang er tiltölulega einfalt að brenna til orkuvinnslu eða til að koma í stað annarra orkugjafa. Þannig getur Sementsverksmiðjan hf. gegnt stóru hlutverki. Það yrði því verulegt áfall fyrir úrvinnsluiðnaðinn hér á landi ef brennslu úrgangsefna yrði hætt í Sementsverksmiðjunni hf. Þá þarf að koma þessum efnum annað, í flestum tilfellum til útlanda með tilheyrandi kostnaði. Einnig þarf að hafa í huga að reglur um flutning úrgangsefna á milli landa verða sífellt strangari. Það er því ákaflega mikilvægt að tryggja megi rekstur Sementsverksmiðjunnar á Akranesi til frambúðar.

Minni hluti iðnn. leggur til að frv. verði vísað til ríkisstjórnarinnar til frekari vinnslu og til að treysta það að Sementsverksmiðjan hf. á Akranesi megi áfram vera í starfsemi þar og vinna landinu gagn.

Herra forseti. Ég hef mælt fyrir áliti minni hluta iðnn.