Framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum

Fimmtudaginn 13. mars 2003, kl. 23:53:10 (5031)

2003-03-13 23:53:10# 128. lþ. 100.37 fundur 636. mál: #A framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum# (verðjöfnun við útflutning) frv. 82/2003, SvanJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 100. fundur, 128. lþ.

[23:53]

Svanfríður Jónasdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég vildi gjarnan leita eftir aðeins frekari uppýsingum hjá framsögumanni nefndarálitsins. Það kemur hér fram að um er að ræða íblöndunarefni og að tilteknir vöruflokkar sem verði þá með þessu lagafrv. gerðir hæfir til útflutnings ef svo má að orði komast. Ég hefði gjarnan viljað, herra forseti, að framsögumaður segði okkur gerr af því um hvaða vörur er að ræða. Getur hún nefnt okkur þá vöruflokka og vörur sem hér er um að ræða svo við áttum okkur betur á umfangi málsins?