Þórunn Sveinbjarnardóttir:
Hæstv. forseti. Ég vil nota þetta tækifæri til þess að lýsa eindregnum stuðningi Samfylkingarinnar við þessa áskorun verkalýðshreyfingarinnar, samtaka launafólks og félagsskaparins Átak gegn stríði. Það skiptir mjög miklu máli að það sé rætt alls staðar í samfélaginu hvaða afleiðingar það gæti haft, ekki bara fyrir óbreytta borgara í Írak eða í Miðausturlöndum, heldur fyrir okkur öll, ef af stríði og árás á Írak verður. Ég vil minna á það í þessu sambandi, herra forseti, að samþykktir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna lúta að því að afvopna Íraka. Öll önnur fyrirætlan, m.a. sú sem kemur fram í stefnu Bandaríkjastjórnar, hefur aldrei fengið samþykki öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Það er mjög mikilvægt að hafa það í huga í þessari umræðu af því að það hefur oft borið á því að menn rugli því saman hvað eru samþykktir Sameinuðu þjóðanna og hver sé síðan yfirlýst stefna Bandaríkjastjórnar gagnvart Írak.