Frsm. félmn. (Arnbjörg Sveinsdóttir) (andsvar):
Hæstv. forseti. Til þess að koma í veg fyrir allan misskilning þá var farið vel yfir þetta frv. bæði af nefndarmönnum, alla vega af mér sem formanni, og starfsmönmnum þingsins, þannig að í þessu tilfelli held ég að við getum sagt sem svo að vel hafi verið unnið að frv. Það er kannski ekki ástæða til að taka þetta sem sérstakt dæmi um illa unnið frv. en hins vegar kom sitthvað í ljós sem þurfti að breyta eins og oft gerist því að betur sjá augu en auga í þessu tilfelli, og við gerðum þær breytingar sem þurfti að gera á frv.