Raforkuver

Föstudaginn 14. mars 2003, kl. 16:29:07 (5125)

2003-03-14 16:29:07# 128. lþ. 101.14 fundur 670. mál: #A raforkuver# (Norðlingaölduveita, Nesjavallavirkjun og Hitaveita Suðurnesja) frv. 67/2003, heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 101. fundur, 128. lþ.

[16:29]

Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég hef í rauninni ekki miklu við þetta að bæta. Eitt vil ég þó leggja höfuðáherslu á í þessu máli, að menn spilli ekki þeirri þjóðarsátt sem hægt er að ná í málinu. Ég hef orðið þess rækilega var að einstakt tækifæri var til að ná þjóðarsátt um þetta mál og ég treysti mönnum til að spilla því ekki og ná henni.