Áfallahjálp í sveitarfélögum

Föstudaginn 14. mars 2003, kl. 18:59:34 (5146)

2003-03-14 18:59:34# 128. lþ. 101.39 fundur 59. mál: #A áfallahjálp í sveitarfélögum# þál. 32/128, Frsm. JBjart
[prenta uppsett í dálka] 101. fundur, 128. lþ.

[18:59]

Frsm. heilbr.- og trn. (Jónína Bjartmarz):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. hv. heilbr.- og trn. um till. til þál. um skipulagða áfallahjálp í sveitarfélögum. Með tillögunni er lagt til að ríkisstjórninni verði falið í samstarfi við sveitarfélög að koma á skipulagðri áfallahjálp innan sveitarfélaga. Tillagan gerir ráð fyrir að í hverju sveitarfélagi eða í samstarfi nærliggjandi sveitarfélaga verði komið á markvissri stjórn áfallahjálpar sem bregðast mundi við ef þörf krefði.

Að mati nefndarinnar er mikilvægt að skipulagðri áfallahjálp verði komið á alls staðar á landinu. Ljóst er að á sumum stöðum er þegar gert ráð fyrir þessari aðstoð og því ekki þörf á að hreyfa við málum þar.

Nefndin mælir með samþykkt tillögunnar. Að áliti þessu standa auk framsögumanns, Lára Margrét Ragnarsdóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir, Katrín Fjeldsted og Þuríður Backman. Hv. þm. Ásta Möller, Björgvin G. Sigurðsson, Einar Oddur Kristjánsson og Ólafur Örn Haraldsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.