Matvælaverð á Íslandi

Fimmtudaginn 03. október 2002, kl. 11:38:49 (51)

2002-10-03 11:38:49# 128. lþ. 3.1 fundur 3. mál: #A matvælaverð á Íslandi# þál., SAÞ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 3. fundur, 128. lþ.

[11:38]

Sigríður A. Þórðardóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég vek athygli á því í þessu sambandi að þegar hafa verið gerðar samanburðarrannsóknir innan Evrópusambandsins á þessum hlutum, þ.e. hækkun á verði vöru og þjónustu. Og mér finnst að það væri mjög forvitnilegt að fylgjast með því hvort þetta eru áhrif af upptöku evrunnar, sem koma þá bara fram um leið og myntbreytingin verður, eða hvort þetta heldur eitthvað áfram.