Matvælaverð á Íslandi

Fimmtudaginn 03. október 2002, kl. 12:43:28 (74)

2002-10-03 12:43:28# 128. lþ. 3.1 fundur 3. mál: #A matvælaverð á Íslandi# þál., HBl (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 3. fundur, 128. lþ.

[12:43]

Halldór Blöndal (andsvar):

Herra forseti. Ég er þeirrar skoðunar að erfitt sé að skýra það með öðrum hætti þegar sama verslunarkeðjan er ævinlega lægst í öllum verðflokkum sem mældir eru. Það sýnir að samkeppni er ekki eðlileg hér á landi.