Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Herra forseti. Það er nú kannski ekki mjög uppbyggilegt og í þágu þessarar umræðu að hver ræðumaðurinn á fætur öðrum eyði aðallega ræðutíma sínum í að ræða um viðbrögð annarra þingmanna og það að mínu mati algjörlega á röngum forsendum. Ég hef engan mann heyrt hér í salnum tala gegn því að þessir hlutir væru kannaðir. Það hefur þá algjörlega farið fram hjá mér. Það hefur alla vega ekki komið fram í málflutningi okkar sem hér höfum blandað okkur í umræður af hálfu Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs, heldur þvert á móti. Ég var í allri vinsemd að leyfa mér að koma með ábendingar um að ég teldi jafnvel að það mætti útvíkka tillöguna og kanna þetta á breiðari forsendum. Það mundi gefa okkur meiri upplýsingar í hendur. Og setja, ekki bara matvælaverð heldur vöruverðið almennt í sitt rétta samhengi, þ.e. í samhengi við verðlag, laun og kaupmátt í þeim löndum sem verið er að bera saman.
Ég held að Samfylkingin verði bara að horfast í augu við það að tillagan er eins og hún er. Henni má væntanlega breyta. Eða hvað? Er bannað að koma með hugmyndir og ábendingar inn í umræðuna um að mögulega færi betur á því að útfæra þessa könnun á einhvern annan hátt? Síðan verður auðvitað Samfylkingin að gangast við eigin málflutningi í þessum Evrópumálum. Og það er enginn held ég viðkvæmur eða hvumpinn gagnvart því nema Samfylkingin sjálf. Ég hef engan mann hér heyrt eða hitt sem hefur verið neitt órólegur yfir því nema Samfylkinguna sjálfa.
Varðandi nauðsyn þess að lækka hér matvælaverð, þá er það gamalkunn umræða. Og mikið væri nú gaman að geta hoppað með hv. þm. aðeins aftur í tímann til áramótanna 1987--1988 þegar hér loguðu deilur í þessum þingsölum og uppi í efri deild sálugu um matarskattinn sem þá var verið að reyna að troða á, 24% söluskatt á matvæli. Hverjir voru það? Það voru nú kratarnir blessaðir sem fóru fyrir þeim leiðangri. Þá voru haldnar ræður af því tagi sem ég hef heyrt hér í dag, prýðilegar ræður, um mikilvægi þess að halda niðri matarútgjöldum heimilanna með sérstakri skírskotun með hagsmuna t.d. barnmargra lágtekjufjölskyldna.