VÞV fyrir BjB

Föstudaginn 04. október 2002, kl. 10:30:17 (110)

2002-10-04 10:30:17# 128. lþ. 4.95 fundur 142#B VÞV fyrir BjB#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 4. fundur, 128. lþ.

[10:30]

Forseti (Halldór Blöndal):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

,,Þar sem Björn Bjarnason, 2. þm. Reykv., er á förum til útlanda á vegum Alþingis og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að 1. varamaður á lista Sjálfstfl. í Reykjavík, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi, taki sæti hans á Alþingi á meðan.

Virðingarfyllst,

Sigríður A. Þórðardóttir,

formaður þingflokks Sjálfstfl.``

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa.