Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (andsvar):
Herra forseti. Ef hv. þm. hefur tekið eftir ræðu minni áðan rakti ég einmitt hækkanirnar til Landspítala -- háskólasjúkrahúss, í hverju þær væru fólgnar í prósentum á þessu árabili og rakti einnig af hverju þær stafa. Ég gæti farið nánar út í það ef ég hefði tíma til og mun gera það síðar. En þar er launa- og lyfjakostnaðurinn langstærsti þátturinn eðli málsins samkvæmt. Hins vegar vil ég taka það fram til viðbótar að á síðasta ári stóðust ekki forsendur fjárlaga varðandi verðbólgu og það var stofnunum heilbrigðiskerfisins eins og fleiri stofnunum þungt í skauti. Nú hefur sem betur fer tekist að vinda ofan af því. Ástandið er allt annað núna og komið á jafnvægi í þeim efnum þannig að þetta horfir til betri vegar að því leyti.