Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (andsvar):
Herra forseti. Hér greinir okkur hv. þingmann ekki á um markmið en ég vil geta þess varðandi hjúkrunarrýmin að vandinn hérna á höfuðborgarsvæðinu er auðvitað tengdur byggðaþróuninni. Hingað hefur fólk flutt í mjög miklum mæli. Hér hefur fjölgað um u.þ.b. tvö þúsund manns á ári. Hér á höfuðborgarsvæðinu hefur verið byggður upp eins og einn myndarlegur kaupstaður úti á landi og þjónustan hefur ekki fylgt. Þetta er bara staðreynd sem við þurfum að gera okkur grein fyrir.
Ég vil þó leiðrétta það að á þéttbýlasta staðnum úti á landi, Akureyri, er þessi vandi líka fyrir hendi. Þetta er bundið við þéttbýlustu svæði landsins. En okkur greinir ekki á um markmiðin varðandi heimaþjónustuna.