Jón Bjarnason (andsvar):
Herra forseti. Það hefur komið fram að nú er viðskiptajöfnuður við útlönd. Hins vegar finnst mér hæstv. fjmrh. ekki hafa gert nægilega grein fyrir því eða áttað sig nægilega á því að hinn uppsafnaði viðskiptahalli frá undanförnum árum stendur. Ég hefði viljað heyra hér frá hæstv. ráðherra hversu mikið verður greitt niður af þessum erlendu skuldum, ekki bara hvað þær lækka vegna breytinga á gengi heldur hversu mikið verður greitt niður í ár og næsta ár af erlendum skuldum annars vegar af hálfu ríkisins og hins vegar af hálfu þjóðarbúsins í heild því það er hinn raunverulegi mælikvarði á það hvað er að gerast í þjóðarbúskapnum þó svo að vissulega sé gengið hluti af því.