Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen):
Herra forseti. Þar sem hv. Alþingi deilir a.m.k. að hluta til áhyggjum með hv. þm. um að samþjöppun í sjávarútvegi í of miklum mæli sé óæskileg, þá setti Alþingi fyrir fjórum árum lög um að takmarka hámarkshlutdeild í heildaraflamarkinu. Það er núna í fyrsta skipti sem reynir á þessa hámarkshlutdeild og mér virðist því að ekki sé nein sérstök ástæða í dag að grípa til einhverra aðgerða eða leggja fram einhverjar breytingar í þá veru sem hv. þm. var að tala um.
Hv. Alþingi sá þessa þróun fyrir. Hv. Alþingi setti þar af leiðandi takmörk. Yfir þetta mál var farið á síðasta þingi og gerðar á því örlitlar breytingar. Á þær breytingar reynir ekkert í því tilviki sem hv. þm. er að tala um þannig að það hefur ekkert breyst frá því að þessi lög voru sett þangað til Alþingi fór síðast yfir þau sem ætti að kalla á það að gripið væri til sérstakra aðgerða.