Tilkynning um kosningu embættismanna alþjóðanefnda

Þriðjudaginn 08. október 2002, kl. 13:30:54 (313)

2002-10-08 13:30:54# 128. lþ. 6.92 fundur 154#B tilkynning um kosningu embættismanna alþjóðanefnda#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 6. fundur, 128. lþ.

[13:30]

Forseti (Halldór Blöndal):

Borist hafa eftirfarandi tilkynningar um kosningu embættismanna alþjóðanefnda:

Í Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins: Einar K. Guðfinnsson formaður og Jóhanna Sigurðardóttir varaformaður.

Í Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins: Lára Margrét Ragnarsdóttir formaður og Ólafur Örn Haraldsson varaformaður.

Í Íslandsdeild NATO-þingsins: Árni R. Árnason formaður og Guðmundur Árni Stefánsson varaformaður.

Í Íslandsdeild Norðurlandaráðs: Ísólfur Gylfi Pálmason formaður og Sigríður Jóhannesdóttir varaformaður.

Í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins: Einar Oddur Kristjánsson formaður og Hjálmar Árnason varaformaður.

Í Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA: Vilhjálmur Egilsson formaður og Kristinn H. Gunnarsson varaformaður.

Í Íslandsdeild þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál: Sigríður A. Þórðardóttir formaður og Magnús Stefánsson varaformaður.

Í Íslandsdeild þings Vestur-Evrópusambandsins: Kristján Pálsson formaður og Katrín Fjeldsted varaformaður.

Í Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu: Magnús Stefánsson formaður og Ásta R. Jóhannesdóttir varaformaður.