Lúðvík Bergvinsson:
Virðulegi forseti. Ég hafði óskað eftir því við forseta þingsins að hann yrði viðstaddur þessa umræðu vegna ummæla sem hann lét falla á þingi úr þessum ræðustóli í gær um að tiltekinn embættismaður hefði farið með rangfærslur og á þann hátt brugðist embættisskyldum sínum. Það er mjög alvarlegt mál, og væri það í öllum þjóðþingum, þegar forsetar þjóðþinga láta frá sér fara ummæli af þessum toga. En það er einhvern veginn þannig að það er eins og karaktereinkenni forseta þingsins, sem meiri hlutinn ber vissulega ábyrgð á, geri það að verkum að hann komist upp með ummæli sem enginn annar kæmist upp með.
Ég harma það mjög að forseti þingsins, sérstaklega þar sem hann er forseti fyrir okkur öll, skuli láta slíkt frá sér fara. Það hefur einungis dregið fram í umræðunni þá miklu vanþekkingu sem hann hefur á þessum málum. Ég harma það líka ef það er þannig að hæstv. forseti þingsins sé að gera út í skjóli embættisins einhverja aðför að tilteknum fyrirtækjum í landinu og tilteknum stofnunum. Ég harma þetta mjög og taldi ekki við hæfi að slík ummæli yrðu látin óátalin og fengju að lifa þannig yfir helgina. Ég verð því að segja, virðulegi forseti, að ég harma það mjög að forseti þingsins, sem við á einn eða annan hátt berum öll ábyrgð á en sem betur fer er hann mestmegnis á ábyrgð meiri hlutans, skuli láta slíka hluti frá sér fara hér úr þessum ræðustóli.