Alþjóðahvalveiðiráðið, Evrópuár öryrkja, rjúpnaveiðitíminn

Mánudaginn 14. október 2002, kl. 15:21:44 (491)

2002-10-14 15:21:44# 128. lþ. 9.91 fundur 170#B Alþjóðahvalveiðiráðið, Evrópuár öryrkja, rjúpnaveiðitíminn# (aths. um störf þingsins), ÁSJ
[prenta uppsett í dálka] 9. fundur, 128. lþ.

[15:21]

Árni Steinar Jóhannsson:

Virðulegi forseti. Ég vil bara fagna þeim upplýsingum sem hæstv. sjútvrh. gaf þinginu hér áðan um aðild okkar að Alþjóðahvalveiðiráðinu á nýjan leik. Ég sé ástæðu til að þakka hæstv. ráðherra og starfsfólki hans fyrir vel unnin störf í þessu máli. Þetta hefur haft töluverðan aðdraganda og hefur verið mikið verk og krafist mikilla fundahalda. Ég vil aðeins að það komi fram.