Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson):
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðjóni A. Kristjánssyni fyrir ræðu hans og ábendingar sem komu fram í máli hans. Ég tel eðlilegt að þær ábendingar sem komu fram hjá hv. þm. verði skoðaðar rækilega í samgn. við meðferð málsins. Hins vegar er á það að líta að þetta mál var ítarlega rætt á síðasta þingi eins og fram hefur komið og samgn. fór mjög vandlega yfir það.
Hvað varðar þær athugasemdir og ábendingar þingmannsins sem lúta að því sem kemur fram í c- og d-lið 2. mgr. 1. gr. þar sem segir, með leyfi forseta, að verndunarsjónarmið mæli ekki gegn þeim veiðum sem skipið muni stunda meðan á þurrleiguskráningu stendur, þ.e. eins og segir að áður en Siglingastofnun Íslands veitir heimild til þurrleiguskráningar skips skv. 1. mgr. skal liggja fyrir staðfesting sjútvrn. á því að eftirfarandi skilyrði séu uppfyllt.
Um þær spurningar sem þingmaðurinn nefndi er það að segja að það er á valdi Siglingastofnunar að leita umsagnar sjútvrn. sem þarf auðvitað að gefa umsögn sem byggir á alþjóðasamningum og þeirri þekkingu og upplýsingum sem sjútvrn. hefur yfir að ráða. Á grundvelli þeirra upplýsinga er það síðan Siglingastofnunar Íslands að taka afstöðu til þeirra þátta. Þetta er vandasamt verkefni og mikilvægt en í raun er ekki aðrar leiðir að fara en þær sem hér er lagt til að verði notaðar. Við verðum því að sjálfsögðu að treysta þessum stofnunum til að fylgja fast eftir og sjá til þess að eftir þeim ákvæðum og reglum verði farið.
Að öðru leyti vísa ég til þess sem kom fram í framsöguræðu minni og í greinargerð með frv. Ég vænti þess að hv. samgn. fari yfir þau atriði sem fram komu í ræðu hv. þingmanns og voru ekki beinar fyrirspurnir til mín.