Hjálmar Árnason:
Herra forseti. Það er dálítið erfitt að átta sig á hvaða hvatir búa á bak við ýmsar fullyrðingar hjá hv. þm. í aðdraganda fyrirspurna, ekki síst þá fullyrðingu hans, sem ég held ég hafi tekið rétt eftir, að fræðimenn almennt teldu að vetni sem orkuberi væri alls ekki fýsilegur kostur. Mér finnst það athyglisvert, ekki síst í ljósi þess að þúsundir fræðimanna um heim allan, ekki síst á síðustu tíu árum, hafa sagt að vetni muni verða orkuberi 21. aldar.
Ef þingmaðurinn er þeirrar skoðunar, þá er hann líka ósammála bílaiðnaðinum í heiminum sem ver milljörðum króna í rannsóknir á þessu sviði. Hann er þá ósammála stefnumörkun sinnar eigin ríkisstjórnar á þessu sviði. Hann er þá ósammála stefnumörkun Evrópusambandsins sem hefur sett af stað vinnuhóp til þess að skila skýrri stefnumörkun um þetta á næstu mánuðum og þannig má áfram telja.
Það er líka vert að vekja athygli á því að stærstu styrkir sem Íslendingar hafa fengið í einstök verkefni lúta að þeim vetnisáformum sem hér er unnið að nokkuð ötullega, ekki síst af Íslenskri NýOrku.
Ef þetta eru viðhorf þingmannsins, þá hvet ég hann til að kynna sér málið nánar og skal fúslega veita honum upplýsingar um það, en vara hann við að koma með svona vafasamar fullyrðingar í aðdraganda sinna spurninga.