Kolbrún Halldórsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Karli V. Matthíassyni fyrir að taka vel í þá hugmynd mína að kannski ætti að skoða málið á enn breiðari grundvelli en landbn. ber að skoða sín mál venjulega. Ég tek orð hv. þingmanns góð og gild, fagna þeim og vona að þeim sjónarmiðum sem ég hef talað fyrir verði komið á framfæri í landbn., að þess verði gætt að skoðað verði hvort háskólasamfélagið í heild sinni og þá mögulega stofnanir umhvrn. ættu að eiga þarna meiri hlut að máli en gert er ráð fyrir í frv.