Árni Steinar Jóhannsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég er algjörlega sammála hv. þm. Guðjóni A. Kristjánssyni um þessa hugmynd, þ.e. um aðgengið út frá rétti okkar til veiða gagnvart öðrum þjóðum. Það er einmitt þetta sem ég var að reyna að undirstrika áðan í málflutningi mínum, nákvæmlega sömu hugsun gagnvart sjávarbyggðum landsins eftir áratuga reynslu þeirra og uppbyggingu á grunni auðlindarinnar. Ég lýsi því bara yfir að hugmyndin um rétt landsins í heild sinni er skynsamleg og ég vonast til að með tímanum verði svipuð hugsun uppi gagnvart sjávarbyggðum landsins.