Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):
Herra forseti. Þróunin hefur verið sú eins og hv. þm. veit að menn hafa verið að draga úr verðskuldbindingum á nánast öllum sviðum þjóðlífsins á undanförnum árum en það hefur þó ekki verið uppi sú skoðun manna að það væri endilega rétt að hverfa algerlega frá verðtryggingu skuldbindinga. Reyndar er það svo að víða í heiminum hafa menn verið að taka upp slíka verðbindingu þrátt fyrir að þeir hafi ekki verið að slást við sömu vandamál og við gerðum lengi vel, mikla verðbólgu eða jafnvel óðaverðbólgu.