Afdrif þingsályktana

Mánudaginn 04. nóvember 2002, kl. 15:22:16 (990)

2002-11-04 15:22:16# 128. lþ. 21.1 fundur 207#B afdrif þingsályktana# (óundirbúin fsp.), RG
[prenta uppsett í dálka] 21. fundur, 128. lþ.

[15:22]

Rannveig Guðmundsdóttir:

Virðulegi forseti. Já, ég mun leggja mitt af mörkum til þess að því máli verði komið í sæmilegt lag. Það sem ég nefndi hér, eina dæmið sem ég nefndi og gæti ég nefnt mörg fleiri, þá er það því miður ekki tryggt að öllu ungu fólki standi til boða þessi fræðsla, enda vakti það mikla athygli þegar það kom fram í fjölmiðlum að slík fræðsla hefði verið tekin upp á Ólafsfirði.

En það var ekki málið hjá mér. Ég þakka þær upplýsingar sem forsrh. hefur veitt.