Skýrsla um starfslok forstjóra Landssímans

Mánudaginn 04. nóvember 2002, kl. 15:28:08 (994)

2002-11-04 15:28:08# 128. lþ. 21.1 fundur 208#B skýrsla um starfslok forstjóra Landssímans# (óundirbúin fsp.), samgrh.
[prenta uppsett í dálka] 21. fundur, 128. lþ.

[15:28]

Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson):

Herra forseti. Nauðsynlegt er að undirstrika að hér er verið að fjalla um hlutafélag og það er þannig að á aðalfundi hlutafélags eru teknar ákvarðanir. Þar er kjörin stjórn og stjórninni er falið að vinna að málefnum félagsins. Það er því ekki á valdi ráðherra hvað sem hv. þm., sem er í miðjum prófkjörsslag þessa dagana og þarf á því að halda að vekja athygli á sér, þrátt fyrir það er það ekki fyrr en á aðalfundi Símans sem hluthafarnir taka ákvarðanir um nýja stjórn og á milli aðalfunda er það verkefni stjórnar að fara með þau mál sem hér er um fjallað.