Frsm. kjörbréfanefndar (Guðmundur Hallvarðsson):
Herra forseti. Kjörbréfanefnd kom saman og fór yfir kjörbréf Vigdísar Sveinbjörnsdóttur, 3. varaþingmanns Framsfl. í Austurl., sem landskjörstjórn gaf út í dag, 5. nóvember. Kjörbréfanefnd leggur einróma til að kjörbréf Vigdísar Sveinbjörnsdóttur verði samþykkt.