Ójafnvægi í byggðamálum

Þriðjudaginn 05. nóvember 2002, kl. 16:35:50 (1077)

2002-11-05 16:35:50# 128. lþ. 22.8 fundur 29. mál: #A ójafnvægi í byggðamálum# þál., ÖHJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 22. fundur, 128. lþ.

[16:35]

Örlygur Hnefill Jónsson (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. iðnrh. skilmerkileg og skorinorð svör en fyrr má bæta en brotið sé til grunna og vissulega hefur sókn smábáta styrkt og bætt ástand á Vestfjörðum án þess að hið stóra kerfi hafi liðið mikið fyrir það. Ég bendi á að smábátar hafa þar styrkt byggðir til baka.