Skýrsla umboðsmanns Alþingis 2001

Fimmtudaginn 07. nóvember 2002, kl. 11:08:14 (1173)

2002-11-07 11:08:14# 128. lþ. 25.1 fundur 228#B skýrsla umboðsmanns Alþingis 2001# (munnl. skýrsla), HBl (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 25. fundur, 128. lþ.

[11:08]

Halldór Blöndal (um fundarstjórn):

Herra forseti. Mér skilst að þessi skýrsla hafi verið rædd í allshn. á mánudag. Jafnframt vil ég minna á að í þeirri starfsáætlun Alþingis sem ég lagði fyrir þingflokksformenn er sérstaklega gert ráð fyrir því að skýrsla umboðsmanns Alþingis sé rædd í dag þannig að það á ekki að koma neinum hv. þm. á óvart.