Umhverfisráðherra (Siv Friðleifsdóttir) (andsvar):
Virðulegur forseti. Hv. þm. er núna að taka inn í umræðuna áhrif veiðarfæra, t.d. á sjávarbotn. Sú umræða fór einmitt fram þegar þetta frv. var flutt síðast.
Hafrannsóknastofnun stundar rannsóknir sem lúta að því að skoða hvernig veiðarfæri fara með botninn. Það er ekki tekið neitt á þeim málum í þessu frv., alls ekki. Ég tel þessi mál í ágætis farvegi hjá Hafrannsóknastofnun og ekki tilefni til að blanda því inn í þetta frv. Það er annars eðlis. Ég tel að það eigi ekki heima inni í þessu frv.