Ísólfur Gylfi Pálmason:
Herra forseti. Ég vil þakka mjög þarfa fyrirspurn og svar ráðherrans.
Ég velti oft fyrir mér þeirri vöruþróun sem hefur átt sér stað í mjólkuriðnaði í gegnum tíðina. Hún er mjög til fyrirmyndar. Menn segja jafnvel að það sé vegna þess að íslenskir mjólkurfræðingar læri í Danmörku og Danir séu mjög framarlega á þessum sviðum. Ég held að við eigum að halda áfram að hafa þann háttinn á en vöruþróun er með miklum ágætum og ótrúlega fjölbreytt úrval af mjólkurvöru á Íslandi miðað við hve markaðurinn er smár.
Á sama hátt velti ég oft fyrir mér verðmyndun þessarar vöru. Hvað kostar að framleiða einn lítra af mjólk? Hvað kostar að framleiða t.d. einn lítra af sódavatni? Ef við berum þessar vörur saman þá eru þær ólíkar. Mjólkin okkar er mjög heilnæm og hún er í raun og veru ótrúlega ódýr til neytandans. En veltum þessu fyrir okkur: Hvernig er farið að við að framleiða þessa vöru í samanburði framleiðslu á gosdrykkjum, sódavatni og þess háttar?