Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson):
Herra forseti. Það að Samkeppnisstofnun og Póst- og fjarskiptastofnun heyra hvor undir sitt ráðuneytið tel ég að hafi ekki úrslitaáhrif hvað þetta varðar, alla vega er afstaða mín ekki sú. Ég tel að við Íslendingar eigum að leita eins og kostur er hagstæðustu kosta við rekstur stofnana okkar og gæta þess að vera ekki með tvíverknað. Þó er ég ekkert alveg viss um að afkastageta Samkeppnisstofnunar sé miklu meiri en Póst- og fjarskiptastofnunar þannig að sérstök ástæða sé til þess að skjótast í skjól Samkeppnisstofnunar til þess að fá hraða afgreiðslu. En það kann vel að vera.
En eins og ég nefndi hér áður og undirstrikaði sérstaklega þegar fjallað var um fjarskiptalögin síðast í þinginu þá er skipulegt samstarf á milli Póst- og fjarskiptastofnunar og Samkeppnisstofnunar mjög mikilvægt til þess að góð úrlausn mála fáist. Það er afar mikilvægt að svo sé og það er í þágu góðrar niðurstöðu fyrir neytendur.
Hvað varðar tækniþátt Póst- og fjarskiptastofnunarinnar þá má vel vera að hægt sé að koma þeirri starfsemi fyrir einhvers staðar annars staðar. En eins og er höfum við ekki komist að þeirri niðurstöðu við vandlega skoðun í samgrn. að það væri betri kostur að slíta þessa stofnun í sundur eða færa hana annað. Þetta er mjög ung stofnun. Fjarskiptalögin og hinn frjálsi fjarskiptamarkaður er nánast að slíta barnsskónum þannig að ég held að við eigum að fara varlega í að gera miklar breytingar á meðan fjarskiptafyrirtækin og fjarskiptamarkaðurinn eru að ná vopnum sínum í samkeppninni.