Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Mér finnst afar jákvætt að frv. þetta hefur komið fram og tel að það sé fyllilega tímabært að opna á rafræna stjórnsýslu. Ég tek hins vegar undir þá ábendingu sem kom frá hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni að mjög mikilvægt er að tryggja varðveislu gagna vel og ég tel líka af því að frv. er auðvitað nokkuð tæknilegt að mjög mikilvægt sé að nefndin fari vel yfir þessi ákvæði, skoði vel hvað þarf hugsanlega að varast og eins hvort öllum mikilvægum skilyrðum er fullnægt þegar við tökum upp slíka starfsemi í stjórnsýslunni.
Ég kem hér líka til að bera upp spurningu við hæstv. forsrh. Ég tek eftir því að í 2. gr. er sagt: ,,Stjórnvald ákveður hvort boðið verður upp á þann valkost ...`` Síðan er sagt fyrir um það með hvaða hætti það skuli gert þegar stjórnvald ákveður: ,,Stjórnvald getur ákveðið hvaða kröfum gögn, sem það móttekur með rafrænum hætti, þurfa að fullnægja.``
Þá langar mig að spyrja í fyrsta lagi: Getur eitt ráðuneytið ákveðið að taka upp rafræna stjórnsýslu og annað ákveðið að taka hana ekki upp? Getur hugsanlega gerst með þessari heimild að við séum með stjórnsýslu þar sem sumir eru með mjög nútímalega afgreiðslu og aðrir ekki?
Í öðru lagi er fjallað í greinargerðinni á bls. 5 og 6 um þrengri og rýmri merkingu stjórnsýsluorðsins og að hér sé fyrst og fremst verið að kveða á um hina þrengri stjórnsýslu sem ég lít þá á að séu fyrst og fremst ráðuneytin. Er það samt ekki þannig og ber ekki að skilja það svo að þjónustustarfsemi hins opinbera falli líka jafnframt undir lögin eða má skilja frv. þannig að þjónustustarfsemin sé þar undanskilin?