Kristján L. Möller (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. dómsmrh. fyrir svar hennar.
Það er sannarlega alveg rétt að á vegum dómsmrn. er fjöldi starfa úti á landi í undirstofnunum dómsmrn., um það er ekki deilt. Hins vegar er það ljóst að í svörum sem ég hef fengið við fyrirspurnum mínum undanfarin tvö ár um flutning fjarvinnslustarfa út á land á vegum dómsmrn., ég held að ég muni það rétt að þar hafi ekkert gerst. En það verður líka að segja að dómsmrn. er ekkert mikið öðruvísi en önnur ráðuneyti undanfarin tvö ár, þar hefur ekkert orðið af flutningi starfa út á land hvað varðar fjarvinnslu.
Þess vegna hefði ég haldið að það sem hér er verið að gera, að setja Lögbirtingablaðið yfir í rafrænt form, þá væri í raun og veru alveg sama hvort það væri unnið í Reykjavík, á Akureyri, í Vestmannaeyjum, Egilsstöðum eða hvar sem er.
Hæstv. dómsmrh. talaði um að það væri ekki hagkvæmt að flytja slík störf út á land. Ég spyr: Hvers vegna er það ekki hagkvæmt?
Ég vil hins vegar fagna þeirri yfirlýsingu sem hér kom fram hjá hæstv. dómsmrh. að verið væri að athuga með að flytja innheimtu sekta út á land og það er sannarlega hárrétt.