Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):
Herra forseti. Ég get alveg sannfært hv. þm. um að þegar frá þessum hlutum verður gengið, þá liggja allir þeir hlutir klárir fyrir. Það er með nákvæmlega sama hætti og gert var við Landsbankann. Það er undirrituð ákveðin viljayfirlýsing og menn hafa náð saman um alla meginþætti en síðan þurfa aðrir hlutir að liggja klárir fyrir þegar endanlega er frá kaupum gengið og ég sé ekkert rangt við það. Ég hef fulla trú á því að þessir aðilar sem þarna eru að kaupa muni koma vel að verki og vilji reka þennan banka vel. Ég sé ekki annað en mjög vel hafi gengið með söluna á báðum þessum bönkum og að við alþingismenn getum verið ánægðir með það.