Velferðarkerfið

Mánudaginn 18. nóvember 2002, kl. 15:16:25 (1521)

2002-11-18 15:16:25# 128. lþ. 31.1 fundur 243#B velferðarkerfið# (óundirbúin fsp.), forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 31. fundur, 128. lþ.

[15:16]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Herra forseti. Það er örugglega ljóst, hvort sem menn ná saman eða ekki, að fyrir munu liggja eftir þessa vinnu miklar upplýsingar, m.a. upplýsingar um tekjuþróun eldri borgara á undanförnum árum. Ég hygg að það verði fróðlegt fyrir okkur öll að skoða þær upplýsingar. Þó að við næðum ekki saman, sem ég vona enn að muni gerast, munu engu að síður liggja fyrir miklar upplýsingar sem verða gagnlegar fyrir alla umræðu í þinginu.