Viðbótarlán Íbúðalánasjóðs

Mánudaginn 18. nóvember 2002, kl. 15:29:17 (1532)

2002-11-18 15:29:17# 128. lþ. 31.1 fundur 245#B viðbótarlán Íbúðalánasjóðs# (óundirbúin fsp.), fjmrh.
[prenta uppsett í dálka] 31. fundur, 128. lþ.

[15:29]

Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde):

Herra forseti. Ég hlýt að vekja athygli á því hversu óeðlileg þessi fyrirspurn er vegna þess að hér er um að ræða þingmál sem allur þingheimur veit að verður ekki til endanlegrar afgreiðslu fyrr en eftir eina eða tvær vikur. Hitt er annað mál að þetta er auðvitað eitt af fjölmörgum málum sem er til vinsamlegrar umfjöllunar, bæði í þinginu og hjá ríkisstjórn.