Menntamálaráðherra (Tómas Ingi Olrich) (andsvar):
Herra forseti. Að því er varðar þá kynnisför sem farin var til Finnlands, þá er það hárrétt að á vegum menntmrn., iðnrh. og forsrh., hefur verið leitað fanga í Finnlandi um þær breytingar sem þar voru gerðar fyrir nokkru á stefnumótunarvinnu að því er varðar vísindi og rannsóknir. Sú ferð sem farin var til Finnlands í haust var gerð í þeim tilgangi að skoða alveg sérstaklega aðdraganda þessara breytinga, en einnig samstarf sem unnið hefur verið mikið að að skapa milli vísindaheimsins, atvinnulífsins og stjórnmálamanna í Finnlandi. Finnar hafa náð athyglisverðum árangri í þeim efnum og það getur verið margt af þeim að læra.
Í tilefni af þeirri ferð skrifaði ég Alþingi bréf og bauð upp á það að Alþingi sendi fulltrúa með í þetta ferðalag, en sökum naumra fjárveitinga var ekki talið að það væri hægt. Engu að síður var formönnum nefndanna sem komu að þessu máli boðið með í ferðalagið.
Það liggur í hlutarins eðli að öll gögn frá ferðalaginu eru nefndarmönnum aðgengileg og ég mun sjá til þess að minnisblöð og allar upplýsingar um ferðalagið berist nefndarmönnum allra þriggja nefndanna.