Menntamálaráðherra (Tómas Ingi Olrich) (andsvar):
Herra forseti. Af því að hv. síðasti ræðumaður lagði sérstaka áherslu á það hversu mikill munur væri á Finnlandi og Íslandi í þessum efnum langar mig aðeins að geta þess að Finnar verja um 3,6% af landsframleiðslu til rannsókna, og eru þar með hæstir í heiminum. Íslendingar verja nú 3% til þessara mála. Meðaltalið í OECD er 2% og meðaltalið í Evrópusambandinu milli 1,7% og 1,8%. Þetta sýnir að Íslendingar eru í forustusveit í þessum efnum þó að þeir hafi ekki náð enn þá hinu háa hlutfalli Finna.
Síðan er rétt að geta þess að þegar hér er talað um að stjórnmálavæða vísindin má ekki gleyma því að heildarstefnumótun hefur verið í höndum ráðherra. En það hefur ekki verið gert með þeim hætti sem hér er ráðgert að gera. Rannís hefur veitt ráðherrum ráðgjöf í þessum efnum en nú er verið að taka á þessu miklu heildstæðara en gert hefur verið þannig að ekki er verið að stjórnmálavæða vísindin sem slík --- það hefur verið á höndum stjórnmálamanna að móta þessa stefnu --- heldur er verið að gera kerfið heildstæðara.
Síðan er enn eitt atriði sem mig langaði til að vekja athygli á í ræðu hv. síðasta ræðumanns en það er þegar hann sagði að öll eggin væru komin í sömu körfuna. Þetta finnst mér athyglisverð yfirlýsing og ég hefði gjarnan viljað fá nánari skýringar hjá honum á hvað hann á við með þessu. Hvaða egg eru nú lögð í þessa körfu sem voru þar ekki áður?