Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):
Hæstv. forseti. Af því að stundum hefur verið talað um smokkfisk og að hugsanlega tengdust einhver þessara fyrirtækja smokkfisknum þá vil ég spyrja hv. þm. hvort honum hefði þótt betra ef kolkrabbinn hefði keypt Búnaðarbankann. (Gripið fram í: Hvað er kolkrabbi?)